ævintýraeyjan

07_kria_sm
Þeir sem búa á Íslandi eru svo heppnir búa í umhverfi sem á sér fáa sína líka. Dramatíkin í sköpun heimsins er við bæjardyrnar.

DAGSFERÐIR FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Laugardaga í Maí - September

NÁTTÚRUSKOÐUN OG MYNDLIST
29. Júní - 3. júlí / 20. - 24. júlí
Námskeið í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík

HÁLENDISFERÐ FYRIR KRAKKA
11. - 13. júlí

til baka á forsíðu

Hugmyndin er að opna augu þeirra fyrir ævintýralegu landslagi sem er í sífelldri mótun sköpunar og eyðingar.
Huga að samspili manns og náttúru, manninum í náttúrunni og náttúrunni í manninum.

Tilgangurinn er að efla tengsl barna og unglinga við landið og náttúruna og örva um leið athyglisgáfu og næmi fyrir umhverfinu. Áhersla er lögð á að börnin geti spjarað sig í náttúrunni og að þau læri á búnað, kortalestur og göngutækni í mismunandi landslagi auk þess sem þau þjálfa kunnáttu í matseld undir berum himni.

Ferðaskrifstofa.litil