3ja daga gönguferð (helgarferð+)
20. - 22. júní / 27. - 29. júlí / 21. - 23. ágúst
Við kynnumst hverum, laugum og líparítfjöllum á háhitasvæði sem er einstakt í heiminum og er mesta líparítsvæði landsins. Torfajökulsvæðið er eitt þekktasta útivistarsvæði landsins en svæðin sem við skoðum eru utan „Laugavegar“ og því furðu lítt þekkt. Við kynnumst landi sem er í hættu vegna virkjanaáætlana. Við skoðum; Reykjadali, Hrafntinnusker, Háskerðing og endum ferðina í fjallabaði í Landmannalaugum. Gist í skála í Hrafntinnuskeri 2 nætur. Allur matur innifalinn. Fjallateygjur kvölds og morgna.
Leiðsögumaður: Ósk Vilhjálmsdóttir
1. dagur:
Ekið sem leið liggur um Hellisheiði, Gunnarsholt og Langvíuhraun að Laufafelli. Gangan hefst í hinum litríku Reykjadölum við upptök Markarfljóts. Við göngum yfir Hrafntinnuhraun inná hið magnaða hverasvæði vestan við Hrafntinnusker. Þetta er dagur til að njóta litadýrrðar og fjölbreytileika við Hrafntinnusker. Gengið yfir skerið í skála FFÍ þar sem við gistum til 2ja nátta.
2. dagur:
Við notum daginn til að kynnast hinu lítt þekkta háhitasvæði Háskerðings. Þegar vel viðrar er útsýni yfir flesta jökla landsins.
3. dagur:
Gengið úr Hrafntinnuskeri í Landmannalaugar. Förum í fjallabað í fjallasal áður en haldið er til byggða. Komið til Reykjavíkur um kvöldið.
fjöldi í ferð: 6 - 14
Verð: 51.000.-
Innifalið; fararstjórn, trúss, rútuferðir, skálagisting, fullt fæði
BÓKUN
til baka