helgarferðir um neðri hluta Þjórsár
Efri hluti Þjórsár er gjörnýttur undir virkjanir. Nú virðist komin
röðin að neðri hlutanum. Landsvirkjun hyggst reisa þar þrjár virkjanir
- Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun. Í ferðinni gefst
tækifæri til að kynna sér landið við Þjórsá áður en það verður um
seinan. Gengnar verða fagrar en mjög fáfarnar slóðir á bökkum árinnar
í fylgd heimamanna í Gnúpverjahreppi og Flóa. Gangan er auðveld og
skemmtileg.
Fararstjórar eru Ósk Vilhjálmsdóttir og Hjálmar Sveinsson
Laugardagur:
Lagt af stað með rútu frá Umferðamiðstöðinni klukkan 9 og ekið að Minna-Hofi í
Gnúpverjahreppi þar sem gangan hefst. Þaðan sjáum við eyjuna Árnes þar
sem áður var þingstaður. Fossinn Búði verður skoðaður og gömul vöð,
síðan verður gengið upp að Þjórsárholti þar sem hópurinn nýtur fagurs
útsýnis um leið og nesti er snætt. Brátt sést Þjórsárdalur og tvær
fallega skógi vaxnar eyjar, Ölmóðsey og Viðey. Í austri gnæfir Hekla.
Á þessum slóðum málaði Ásgrímur Jónsson mörg sín frægustu Heklumálverk.
Við njótum leiðsagnar Bjargar Evu Erlendsdóttur frá Hamarsheiði og
Sigþrúðar Jónsdóttur frá Geldingaholti.
Auðveld 5 tíma ganga.
Boðið verður upp á dýrindis kjötsúpu í gistihúsinu við Árnes um
kvöldið og þar verður gist (svefnpokagisting*).
Sunnudagur:
Morgunverður klukkan 8.30 og nesti útbúið. Lagt af stað klukkan 9.30
og keyrt niður undir Þjórsárbrú. Gengið með ánni á bökkunum við
Urriðafoss. Hópurinn nýtur leiðsagnar staðkunnugra heimamanna.
Nestistími við ána. Keyrt niður með ánni og svo með sjávarsíðunni í gegnum
Stokkseyri og Eyrarbakka á leiðinni til Reykjavíkur
Komið á Umferðamiðstöðina í Reykjavík um kl 16
staðfestingagjald: 5000 kr
Verð: 25.000 kr
Unglingaverð: 18 ára og yngri greiða hálft gjald
Innifalið: rúta, leiðsögn, gisting, fullt fæði
*Rúmin eru óuppábúin en sængur og koddar á staðnum, það þarf að hafa rúmföt meðferðis.
BÓKUN
til baka