5 daga trússferð með fullu fæði - skálagisting
15. - 19. Júlí
06. - 10. Ágúst

Í þessari ferð er haldið inn að miðju Íslands. Í fjallaþyrpingunni Kerlingarföll er eitt magnaðasta og leyndardómsfyllsta háhitasvæði landsins umkringt háum líparitsfjöllum. Gengið er um hveradali í gegnum fjallaþyrpinguna og þaðan yfir í gjörólíkt landslag friðlandsins suður af Hofsjökli. Jökulvatnið kvíslast þar eins og háræðanet um svæðið og gefur því næringu. Þarna er kafagróður og eitt stærsta heiðagæsavarp í heiminum. Á leiðinn til baka til Reykjavíkur verða litt þekktir fossar í jökulsánni Þjórsá skoðaðir.
Leiðsögumenn: Ósk Vilhjálmsdóttir / Hjálmar Sveinsson
stefnumót við Þóru Ellen Þórhallsdóttur grasafræðing í Þjórsárverum
*Möguleiki á aukaferð 1. - 5. ágúst (Verslunarmannahelgin)
1. dagur:
Brottför kl. 8:00 frá BSÍ. Ekið sem leið liggur yfir Hellisheiði og Kjöl, komið í Kerlingarfjöll um hádegisbil. Ef vel viðrar er möguleiki að ganga á Snækoll en þaðan er í góðu skyggni eitt besta útsýni landsins. Þetta mun vera um 1,5 km ganga hvora leið og tæplega 400 metra hækkun frá bílastæði. Ca. 3 - 4 tímar.
Gist í skála í Kerlingarfjöllum.
2. dagur:
Dagur til að kynnast háhitasvæðum Kerlingarfjalla. Við göngum úr náttstað upp Ásgarðshrygg yfir í Hveradali og gefum okkur góðan tíma til að litast um. Gengið upp í Efri Hveradali og þaðan yfir fjallgarðinn og niður á slóða sem liggur um Illahraun á milli Kerlingafjalla og Hofsjökuls. Trússari hittir okkur við slóðan og ekur þeim sem það kjósa í náttstað í Setri sem er skáli 4 x 4 og er staðsettur við mörk friðlandsins í Þjórsárverum. Við gistum í Setri næstu þrjár næturnar.
3. dagur:
Næstu tvo daga kynnumst við í friðlandinu í Þjórsárverum. . Mikilvægt að vera vel búin til að vaða þessa daga.
Léttur dagur til að njóta öræfakyrrðar í friðlandinu. Gengið á slóðum Heiðagæsa með Blautukvísl um gróðursæl Tjarnarver að Þjórsá þar sem Trússarinn bíður okkar og selflytur göngufólk í Setur.
4. dagur:
Við byrjum daginn á að vaða Blautukvísl og svo þrjár aðrar kvíslar. Það venst fljótt og verður á endanum skemmtilegt. Ferðinni er heitið að gróðursælum múlum við Múlajökul þar sem við könnum plöntur, fornar reiðgötur, gæsarétir og rústir. Á þessum slóðum fundu Fjalla Eyvindur og Halla eitt sinn afdrep. Við göngum um Nauthaga, gróðurvin í um 600 metra hæð. Þarna mikil gróska í blómjurtum. Við hittum Þóru Ellen Þórhallsdóttur við Múlana og fræðumst um blómjurtir, rústir og gæsaréttir. Gengið til baka í Setur þar sem við sláum upp hátíðarkvöldverði síðasta kvöldið.
5. dagur:
Ekið um Gljúfurleit til byggða. Á heimleiðinni kynnumst við fossum sem fáir þekkja í efri hluta Þjórsár. Hér gefst tækifæri til að kynna sér landið við Þjórsá áður en það verður um seinan.
verð: 89.000.-
Innifalið; fararstjórn, skálagisting, fullt fæði*, trúss, rútuferðir.
*Hópurin matreiðir í sameiningu.
búnaðarlisti
matseðill
BÓKUN
til baka
