Undraveröld Eyjabakka og Lónsöræfa
5 daga gönguferð með fullu fæði (matur í trússi) - skálagisting
31. júlí - 4. ágúst / 27. - 31. ágúst
skor.skor.
osk_lon
Trússferð með fullu fæði. Gengið um undraveröld fossa, jökla og líparítfjalla. Skálagisting í Geldingafelli, Egilsseli og Múlaskála. Gönguferð um þetta magnaða svæði með létta poka en vistum hefur verið komið fyrir í skálum.
Fjallateygjur kvölds og morgna.
Leiðsögumenn Ósk Vilhjálmsdóttir / Hjálmar Sveinsson

eyjabakkar_lon-12 Lonsoraefi_1

1. dagur:
Brottför kl. 9.30 frá Egilsstaðaflugvelli. Ekið með Lagarfljótinu sem leið liggur uppá Fljótsdalsheiði að Eyjabakkafossi í Jökulsá á Fljótsdal. Við hefjum göngu við Jökulsá á Fljótsdal í námunda við Eyjabakkafoss. Þetta er dagur til að njóta náttúrufegurðar Eyjabakka sem er einstök gróðurvin við jökulsporð Eyjabakkajökuls. Á Eyjabökkum er eitt fjölbreyttasta gróðursvæði hálendisins. Þarna er mikið heiðagæsavarp en talið er að um 7000 pör verpi þar á hverju ári. Austurbakkarnir eru þurrir og þægilegir yfirferðar. Vaðið yfir Blöndukvísl áður en komið er að skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs við Geldingafell.

2. dagur:
Gengið uppá Geldingafellin en í góðu skyggni má njóta frábærs útsýnis yfir hálendið. Haldið áfram niður í Vesturdal að upptökum Jökulsár í Lóni en við snæðum hádegisverð í námunda hinn fossinn Hroll sem steypist þar niður af gljúfurbrún. Við höldum áfram en það verður annar tignarlegur foss á leið okkar í Vesturdalsánni. Við göngum um Kollumúlaheiði í Egilssel við Kollumúlavatn þar sem við gistum til tveggja nátta.

3. dagur:
Dagur til að kynnast náttúrufegurð og ævintýralegri sögu Víðidals. Við könnum bæjarrústir á Grund en þar var afskekktasti bær landsins frá 1835 til 1897. Það voru haldnar dagbækur alla búsetutíð en í Engiselsskála má finna heilmikið lesefni um ábúendur í Víðidal. Dalurinn er grösugur en var sannkölluð gróðurparadís áður en búseta hófst og þoldi illa návist manns og sauðkindar. Gott er að hafa vaðskó uppivið því við vöðum yfir Norðlingavað á Víðidalsvaði.

4. dagur:
Við skoðum Náttmálafoss sem er í námunda við skálann. Á björtum degi er betra að leggja ekki of snemma af stað vegna sólarinnar sem skyggir á Tröllakróka í morgunsárið. Gengið á Tröllahnúkahaus og þaðan út brúnir Tröllakróka sem blasa við með öllum sínum kynjamyndum. Gengið niður Leiðartungur en þar erum við komin á hið magnaða líparítsvæði sem Lónsöræfi eru þekkt fyrir. Hér er mikil náttúrufegurð og litadýrrð; líparitið blátt og grænt, jöklarnir og birkiskógar. Við höldum í Múlaskála og undirbúum hátíðarkvöldverð.

5. dagur:
Morgunganga fyrir þá sem vilja um Gjögur að Meingilsfossum og þaðan á Stórahnaus og aftur í skála. Eftir hádegismat er gengið áleiðis á Illakambi en þar skiljum við pokana eftir og rannsökum Þilgil. Sækjum síðan pokana og göngum á Illakamb í veg fyrir bifreið sem ekur okkur til Hafnar og þaðan til Reykjavíkur.

Fjöldi: 10 - 14 manns

Verð: 69.000.-

Innifalið: fararstjórn, rútuferðir, skálagisting, trúss, fullt fæði.
Möguleiki á flugi frá Reykjavíkur til Egillstaða og til baka frá Höfn til Reykjavíkur með tilheyrandi kostnaði.


BÓKUN

til baka
eyjabakkar_lon-26
Picture 19