MEÐ SKJÁLFANDAFLJÓTI
7 daga tjaldferð með trússi og fullu fæði
12. – 18. ágúst
skor.skor.skor.
Gengið um forna þjóðleið úr Bárðardal með Skjálfandafljóti eftir Bárðargötu um Vonarskarð í Nýjadal. Þetta er mögnuð leið sem fáir þekkja í jaðri stærstu samfelldu hraunbreiðu landsins Ódáðahrauns í námunda við stærstu dyngju landsins Trölladyngju og stærsta jökul landsins Vatnajökul. Þetta er trölla og útilegumannsvæði og það er í hættu vegna virkjanaáforma við Skjálfanda. Leiðsögn, trúss og fullt fæði innifalið, matseld og máltíðir fara fram í samkvæmistjaldi (Sveinstindur). Fjallateygjur kvölds og morgna.
skjalfandi_1

1. dagur :
Við hittumst á Fosshóli við Goðafoss og leggjum af stað kl. 9:00. Ekið um Bárðardal að Aldeyjarfossi. Stutt og þægileg ganga með Skjálfandafljóti að Ingvararfossi og Hrafnabjargarfossi, ekið austur yfir ána á vaði við Hrafnabjörg en þar er fyrirhugað að virkja fljótið. Við göngum upp með Hafursstaðaheiði, sem kennd er við fornt býli, en munnmæli og ummerki um ábúnað eru hér langt suður með fljótinu. Haldið yfir Sandmúladal og í náttstað við Krossá. Tilvalið að skreppa í kvöldgöngu um Krossárgljúfur.
Vegalengd: 10 - 11 km

2. dagur :
Gengið meðfram fljótinu um grónar brekkur. Farið um Öxnadal sem er fallega gróin dalur með samnefndri á. Við höldum áfram yfir Ytri- og Syðri-Múla sem eru snarbrattir niður að fljóti. Sunnan þeirra er komið í Hraunárdal sem er fullur af hrauni sem á sínum tíma hefur runnið yfir Skjálfandafljót. Handan ár blasir Kiðagil við. Við tjöldum til tveggja nátta við Hrauná í Hraunárdal.
Vegalengd: 18 - 20 km

3. dagur :
Dagur til að njóta náttúrufegurðar í hinum afskekkta Hraunárdal. Nú liggur fyrir að kanna Ytra-Fljótsgil, en fyrst þarf að vaða yfir Hrauná. Gengið á Fljótsnhúka ef vel viðrar. Önnur nótt í Hraunárdal.
Vegalengd: 10 - 12 km

4. dagur :
Haldið áfram suður með hraunjaðrinum um víðlent gróðursvæði sem nefnist Laufrönd. Tjaldað á Marteinsflæðu sem er syðsti gróðurbletturinn í Ódáðahrauni. Nokkru sunnar með fljótinu er Hitalaug syðri eða Marteinsflæðulaug, möguleiki að rölta þangað og taka sér volgt fótabað.
Vegalengd: 17 - 18 km

5. dagur :
Nú breytist umhverfið þar sem komið er suður undir jökla. Leiðin liggur í Vonarskarð en farið er yfir Skjálfandafljót á brú og síðan gengið upp með fljótinu að fossinum Gjallanda, syðsta fossinum í fljótinu og þeim fjórða í þessarri ferð.
Frá fossinum fylgjum við jeppaslóð suður í Vonarskarð þar sem við sláum upp tjaldbúðum við Hnífla við rætur Valafells.
Vegalengd: 18 - 20 km.

6. dagur :
Frá tjaldstað er haldið sunnan lágfjalla Tungnafellsjökuls í Nýjadal. Farið er yfir Gjóstuklif og Rauðá vaðin. Þaðan er haldið inn í Snapadal. Þaðan er haldið upp í skarðið eftir Göngubrún og Mjóhálsi, suðurbrúnum Nýjadals og endað við skálann í Nýjadal þar sem við tjöldum til síðustu náttar og undirbúum hátíðarkvöldverð.
Vegalengd: 18 - 20 km.

7. dagur (27. ágúst):
Áætlun Kynnisferða kemur norður í Nýjadal um hádegisbil, ekið að Goðafossi (ekki innifalið í verði)

fjöldi: 10 - 16 manns

Innifalið; fararstjórn, trúss, fullt fæði*, akstur frá Goðafossi að Hrafnabjörgum.

*hópurinn hjálpast að við matseld og uppvask.

búnaður

BÓKUN

til baka
homeiconuk
Picture 5