- Nýjársganga á plötuskilum -
laugardaginn 3. janúar 2009
Gönguferð á Reykjanesi þar sem Mið-Atlantshafshryggurinn skríður á land. Reykjanesið er jarðfræðilega mjög ungt og í stöðugri mótun. Það er eldbrunnið og sundurtætt af jarðeldum, gígum og gjám, leirpyttum og gufuhverum.
Ekið áleiðis til Krísuvíkur inn Vatnsskarð og bílum lagt við mynni Fagradals. Gengið upp Vatnshlíðarhorn (300 metra hækkun) en þar komum við uppá slétta hraunbreiðu. Göngum að Kistufelli og Brennisteinsfjöllum og skoðum þar kynjamyndir.
Stefnumót á BSÍ kl. 10:00 reiknað með að koma til baka kl. 16 - 17.
Ferðafélagar taka með sér gott nesti og góða skó

