---------------------------------------------
Nú er uppselt í jarðfræðiferð um Torfajökulsvæðið 7. - 9. ágúst. En við bjóðum uppá aukaferð 13. - 15. ágúst. Áhugasamir hafi samband í síma: 8640412 eða info@halendisferdir.is
-----------------------------------
Hér eru myndir úr vel heppnaðri jarðfræðiferð í Kerlingarfjöll.
------------------------------------
Júní 2010 - Hálendisferðir hlutu styrk úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar
Styrkurinn er fyrir verkefnið „Náttúrulega“;
Námskeið og hálendisferðir fyrir börn og unglinga verða niðurgreidd í sumar:-)

14. april 2010
Náttúruskoðun og ljósmyndun á eldfjallaeyju
Í sumar ætlum við að þróa ferðir sérsniðnar fyrir unglinga með áherslu á landslagsljósmyndun í samvinnu við Christopher Lund ljósmyndara. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu.
---------------------------------------
23. Mars 2010:
Samstarf við Landvernd
Hálendisferðir og Landvernd skipuleggja ferðir um háhitasvæði Kerlingafjalla og Torfajökuls í sumar ásamt jarðfræðingunum Sigmundi Einarssyni og Kristjáni Jónassyni. Nánar hér
---------------------------------------
13. Mars 2010:
Ósk Vilhjálmsdóttir var aðalviðmælandi hins þekkta franska kvikmyndagerðarmanns og náttúrufræðings Nicolaus Hulot í stórri heimildarmynd sem hann tók á Íslandi sumarið 2009. Myndin heitir USHUAIA NATURE og var frumsýnd í franska sjónvarpinu TF1 þrettánda mars síðastliðinn. Tíu milljón Frakka sáu myndina.
---------------------------------------
Þýska sjónvarpstöðin Norddeutsche Rundfunk slóst í för með Hálendisferðum í Kerlingarfjöll og Þjórsárver sumarið 2009 og fjallaði í kjölfarið um virkjanamál á Íslandi í desember 2009. Sjá hér brot úr þeim þætti.
---------------------------------------
MYNDIR FRÁ SUMRINU 2009:
kvikar myndir - Náttúruskoðun og myndlist - Hálendisferð fyrir börn og fullorðna - Kerlingarfjöll og Þjórsárver
------------------------------------------
September 2009: tilnefning til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
.. fyrir að hafa staðið fyrir ferðum með fjölda fólks inn á svæði á hálendi Íslands sem ógnað er af virkjanaáformum. Ósk Vilhjálmsdóttir og Ásta Arnardóttir skipulögðu ferðir á árunum 2003 – 2006 um stórbrotið svæði þar sem áformað var að reisa Kárahnjúkavirkjun. Nú er það svæði að stórum hluta horfið undir Hálslón, vatnsforðabúr 700 MW vatnsaflsvirkjunar, sem sér álveri í Fjarðabyggð fyrir raforku.

---------------------------------
júní 2009 - Hálendisferðir hlutu styrk úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar
Styrkurinn er fyrir verkefnið „Náttúruskóli“;
Námskeið og hálendisferðir fyrir börn og unglinga þar sem tilgangurinn er að efla tengsl þátttakenda við landið og náttúruna.

Námskeiðin „Náttúruskoðun og myndlist“
og „Hálendisferð fyrir alla“ verða því niðurgreidd í sumar:-)

---------------------------------------
Sunnudagsganga á Reykjanesi
Reykjanesið er magnað en lítt þekkt eldfjallasvæði. Við stefnum að því að kynnast því betur og leggja í fjölbreytta leiðangra um Reykjanesið og Hengilssvæðið á næstunni.
Sunnudaginn 17. maí var gengið frá Reykjanesvita um Reykjaveg og Eldvarpahraun í 20°hita.

------------------------------------
Gleðilegt sumar!
Nú eru ferðir og námskeið sumarsins komin í loftið

--------------------------------
HANDARTAK
við skipuleggjum röð námskeiða sem stuðla að sjálfbærni og sjálfstæði á nýjum tímum.
fyrstu námskeiðin eru í höndum Áslaugar Leifsdóttur fatahönnuðar:
klæðskurður - endurvinnsla*
ullarþæfing*
2. hæð í bogahúsinu Sætúni 2 (áður Ljósmyndasafn Reykjavíkur)

*tilvalið að hanna persónulega fjallakjóla, húfur og vetlinga fyrir næsta sumar
áhugasamir hafi samband: info@halendisferdir.is
eða í síma: 6632797 (Halldóra) 6914212 (Ósk)
----------------------------------------------------------------------------------------
Nýjársganga um Brennisteinsfjöll fyrir börn og fullorðna 3. janúar 2009!
meira
Sumaráætlun 2009 er komin í loftið. Við bjóðum uppá ferðir í Kerlingarfjöll og Þjórsárver, Eyjabakka og Lónsöræfi, Torfajökulsvæðið, Með Skjálfandafljóti, Krakkaferð og krakkanámskeið.
___________________________________________________
Við stefnum að dagsferð með Ómari Ragnarssyni um Leirhnjúk og Gjástykki í haust. Þarna gefst tækifæri til að kynnast mögnuðu svæði sem hefur verið í umræðunni vegna fyrirhugaðrar virkjunar við Bakka á Húsavík. Áhugasamir hafi samband: info@halendisferdir.is
_____________________________________________________
Mikið hefur bókast í barnanámskeiðin og er nú að verða uppbókað á námskeiðið 21. - 25. júlí.
Enn eru nokkur laus pláss á námskeiðið 11. - 15. ágúst og höfum við ákveðið að hleypa yngri börnum þar að líka.
_____________________________________________________
Ölkelduháls

Myndir úr ferðinni
forsíða
