Ævintýraeyjan

Þeir sem búa á Íslandi eru svo heppnir búa í umhverfi sem á sér fáa sína líka. Dramatíkin í sköpun heimsins er við bæjardyrnar.

Tilgangurinn er að efla tengsl barna og unglinga við landið og náttúruna og örva um leið athyglisgáfu og næmi fyrir umhverfinu. Áhersla er lögð á að börnin geti spjarað sig í náttúrunni og að þau læri á búnað, kortalestur og göngutækni í mismunandi landslagi auk þess sem þau þjálfa kunnáttu í matseld undir berum himni.

Markmiðið er að opna augu þeirra fyrir ævintýralegu landslagi sem er í sífelldri mótun sköpunar og eyðingar.
Huga að samspili manns og náttúru, manninum í náttúrunni og náttúrunni í manninum.

NÁTTÚRUSKOÐUN OG MYNDLIST
25. - 29. júlí

HÁLENDISFERÐ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
8. - 10. júlí

Hálendisferðir hljóta styrk úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar sumarið 2011
Báðar þessar ferðir eru niðurgreiddar af sjóðnum
Þökkum rausnarlegt framlag sjóðsins síðustu ár!