Hverir, laugar og líparítfjöll
19. - 21. júní
Gönguferð um eitt mesta háhitasvæði í heimi í fylgd með
Sigmundi Einarssyni jarðfræðingi

Trússferð, gist í skála í Hrafntinnuskeri


Ferðalag um stórbrotið landslag hvera, lauga og líparítfjalla. Háhitasvæði sem er einstakt í heiminum og er mesta líparítsvæði landsins. Torfajökulsvæðið er eitt þekktasta útivistarsvæði landsins en svæðin sem við skoðum eru utan „Laugavegar“ og því furðu lítt þekkt. Við kynnumst landi sem er í hættu vegna virkjanaáætlana. Við skoðum; Austur - og Vestur - Reykjadali, Hrafntinnusker, Háskerðing. Gist í skála í Hrafntinnuskeri 2 nætur. Allur matur innifalinn.

1. Dagur: Reykjavík—Dómadalur—Vestur-Reykjadalir—Hrafntinnusker
Hópurinn hittist á BSÍ kl. 9:00 með nesti og góða skó. Ekið sem leið liggur austur yfir Hellisheiði, upp Landsveit og inn á Dómadalsleið. Gangan hefst við Rauðufossa, gengið upp Pokahryggi en þaðan er gott útsýni yfir háhitasvæðið við Hrafntinnusker og Hrafntinnuhraun þar sem Markarfljót á upptök sín. Gengið með Svartakambi niður í Vestur-Reykjadali en þar eru bullandi leirhverir. Möguleiki að skella sér í fjallabað í einum slíkum. Skammt handan við Markarfljót verður litið á gígana sem mynduðu Hrafntinnuhraun árið 871. Gosið hófst með miklu sprengigosi sem þeytti upp ljósum vikri og ösku. Askan barst víða og er nú þekkt sem „landnámslagið“ í jarðvegi. Gist í skála FFÍ Hrafntinnuskeri næstu tvær nætur.

2. dagur: Hrafntinnusker—Reykjafjöll—Jónsvarða—Hrafntinnusker

Gengið verður á Reykjafjöll en þaðan er mikið og gott útsýni til austurs. Við blasir austasti hluti Torfajökulsöskjunnar með Torfajökli og upptakasvæðum Jökulgilskvíslar. Svæðið er mjög gilskorið og litskrúðugt. Mikið hverasvæði er þar sem heita Háuhverir austan undir Reykjafjöllum og einnig í Kaldaklofi sem og við rætur Torfajökuls. Af Reykjafjöllum er einnig ágætt úrsýni til vestur yfir gil Ljósár. Undistöður Hrafntinnuskers sjást einnig ágætlega. Gengið sunnan við Hrafntinnusker inná eitt mesta Hrafntinnusvæði í heimi að Jónsvörðu og gufuhvernum Hvínanda sem er talinn aflmesti hver landsins um þessar mundir. Gengið til baka í skála þar sem við undirbúum hátíðarkvöldverð.

3. dagur: Hrafntinnusker—Ausur-Reykjadalir—Ljósártungur—Reykjavík
Gengið verður á Hrafntinnusker til að fá gott yfirlit yfir hin litskrúðugu gil Ljósár. Þaðan verður haldið inná stærsta samfellda hverasvæðið við Torfajökul og væntanlega einnig það aflmesta. Hér eru leirhverir, leirugir vatnshverir, gufuhverir og soðpönnur af öllum stærðum og gerðum. Árið 2007 var virkur goshver á svæðinu sem sullaði upp í 4 m. Gengið yfir öskjubarminn niður Ljósártungur að Markarfljóti við Ljósártanga þar sem við eigum stefnumót við Viktor bílstjóra.

Leiðsögn: Ósk Vilhjálmsdóttir og Sigmundur Einarsson
Akstur og trúss: Viktor Melsted

fjöldi: 12 - 20

Verð: 66.000 kr

20% afsláttur ef bókað er fyrir 5. júní
= 55.000 kr


Búnaður: gönguskór*, legghlífar, bakpoki (ca 40 L), svefnpoki, koddaver, vatnsflaska, hitabrúsi, nestisbox.
Fatnaður: vatnsheldur hlífðarfatnaður, undirföt (úr ull, silki eða gerfiefni), lopapeysa eða þykk flíspeysa, vetlingar, húfa, 2 pör ullarsokkar (eða gerfiefni), sundföt.

* Gengið er um jarðhitasvæði og því mikilvægt að vera sérlega vel skóaður.

Myndir:
7. - 9. ágúst 2010
13. - 15. ágúst 2010
jardfraedikort_Torfajokull

BÓKUN